Skráning
Innskráning
Nýskráning
Týnt lykilorð
Notandanafn
Tölvupóstur
Lykilorð
Lykilorð aftur
Fullt nafn
Skilmálar
Skilmálar Eftirfarandi skilmálar gilda um xpress þjónustu Nethönnunar ehf, x.is og reikningshafa: 1. Með því að klára innskráningu staðfestir notandi að hann hafi skilið þessa skilmála og sé þeim samþykkur. Sé væntanlegur reikningshafi ekki lögráða er staðfesting lögráðamanns áskilin. Lögráðamaður kemur fram sem reikningshafi sé notandi yngri en 18 ára. 2. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausri lokun á viðskipti án fyrirvara. 3. X.is mun eftir fremsta megni tryggja trúnað og öryggi viðskiptavina og þeirra gagna sem þeir kunna að geyma hjá x.is. 4. Endurgjald fyrir þjónustu x.is reiknast frá samningsgerð og greiðist mánaðarlega. Áskriftargjald reiknast samkvæmt gildandi gjaldskrá x.is á hverjum tíma. Gjalddagi er fyrsti hvers mánaðar. 5. Notandi velur sér notandanafn og lykilorð við nýskráningu. Notandi ber ábyrgð á því að lykilorði sé ekki deilt með öðrum og ber því fulla ábyrgð á því sem þar er framkvæmt eftir innskráningu. 6. X.is ábyrgist ekki: a) Tjón vegna tengiörðugleika, nauðsynlegra viðgerða og endurbóta á búnaði x.is eða óviðráðanlegra ytri aðstæðna. b) X.is getur aldrei orðið ábyrgt vegna hvers kyns tjóns sem notandi kann að verða fyrir við notkun á kerfinu 7. Eftir að samningur hefur komist á ábyrgist reikningshafi að fylgja notkunar-skilmálum svo og eftirfarandi notkunarreglum: a) Ávallt skal tengjast neti X.is og netum sem tengjast því undir réttu auðkenni. b) Óheimilt er að villa á sér heimildir í samskiptum til dæmis þegar sendur er tölvupóstur eða á annan hátt. c) Óheimilt er að birta efni á heimasíðum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi. Þar með talið er efni sem er ærumeiðandi. d) Óheimilt er að nota tenginguna til að dreifa efni þannig að það brjóti í bága við lög og reglur. Til dæmis lög um eignarrétt, höfundarrétt eða almennt velsæmi. e) Óheimilt er að trufla aðgang annarra að netinu s.s. með óhóflegri umferð eða beinum skemmdarverkum. f) Viðskiptavinum er óheimilt að að setja upp hugbúnað eða starfrækja þjónustu á tölvum eða einkanetum sem getur truflað kerfisrekstur og eða þjónustu við aðra viðskiptavini. g) Hvers kyns óumbeðin fjöldadreifing á upplýsingum s.s. auglýsingum, áróðri eða keðjubréfum er óheimil. h) Fylgja skal þeim reglum sem gilda á hverri ráðstefnu (Newsnet/Usenet). i) Fylgja skal þeim reglum sem gilda á spjallrásum (IRC). Notkun spjallrása er þó á eigin ábyrgð. j) Óheimilt er að setja upp DHCP þjónustu á sýndarvélum sem ræstar eru á aðalneti X.is k) Brot gegn liðum a) til j) kann að valda viðkomandi bóta- og/eða refsiábyrgð að lögum. l) X.is áskilur sér rétt til að ákvarða hvort tiltekin samskipti teljast brjóta í bága við þessar reglur. 8. X.is áskilur sér rétt til að senda viðskiptavinum póst, bréf og tölvupóst með tilkynningum er varða þjónustuna. 9. X.is áskilur sér rétt til að að eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir samfellt í 4 mánuði. 10. Hvers kyns ósiðleg eða ólögleg notkun á neti x.is er með öllu óheimil, en verði notandi uppvís um slíka notkun , verður lokað á þjónustu viðkomandi. Þá áskilur x.is sér rétt til að aðstoða rannsakendur við að upplýsa mál sem kunna að koma upp og tengjast vefsvæðinu. 11. Skráður rétthafi telst ábyrgur fyrir að skilmálum x.is sé fylgt. Reikningshafi ber alfarið ábyrgð á notkun auðkennis síns sem og öllum samskiptum og/eða gögnum sem frá því stafa þ.m.t. vefsíður, tölvupóstur, netfréttagögnum og skrárflutningsgögnum 12. Þá er reikningshafi sjálfráður um hvert hann leitar upplýsinga eða gagna á neti x.is og netum sem því tengjast. 13. X.is ábyrgist ekki innihald vefsíðna, tölvupóstsendinga eða ráðstefnugagna sem stafar frá einstökum notendum nets x.is eða netum sem því tengjast. 14. Telji starfsmenn x.is að reikningshafi fylgi ekki notkunarreglum, er x.is heimilt að takmarka eða loka algerlega fyrir aðgang reikningshafa að þjónustu sinni án fyrirvara. 15. Sé ekki innistæða fyrir skuldfærslu áskriftargjalds má reikningshafi búast við að lokað verði fyrir þjónustu við hann innan 24 tíma og viðskiptaskuld viðkomandi reikningshafa send í innheimtu. 16. Greiðslur eða inneignir notenda til x.is eru ekki endurgreiðanlega, nema að ranglega hafi verið rukkað fyrir þjónustulið. 17. Ekki er heimilt að nota nafn eða auðkenni x.is án tilskilins leyfi, merkin eru skráð eign Nethönnunar ehf. 18. Rísi dómsmál vegna notkunar x.is skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 19. Skilmálar þessir kunna að verða endurskoðaðir án fyrirvara gerist þess þörf vegna breytinga á þjónustuframboði eða fjárskipta starfsemi þeirri sem x.is semur notendum. 20. Notandi skal að öllu leyti virða þær umgengnisreglur sem settar eru notendum á Internetinu, þ.m.t. reglur sem gilda á öðrum hlutum þess og þær notkunarreglur sem heildarsamtök aðila að Internetinu setja. 21. Nethönnun ehf. er á engan hátt ábyrg vegna tjóns eða annars skaða sem kann að leiða af því að notandi getur ekki notað netfang sitt, notanda ber sjálfum að taka afrit af gögnum sem hann geymir á vefsvæði sínu, tölvupósti og gögnum á sýndarvélum.
Samþykkja skilmála
Ég samþykki skilmála x.is